Jæja þar kom að því að það það kæmi pest til íslands sem að leggðist á hrossinn, Johnson búin að segja þetta í mörg ár að það sé bara tímaspursmál hvenar þetta færi að gerast.
Þannig að nú er búið að leggja hakknum og senda kvebbaða gobbalinganna í sveitina, í Bæinn Þykkva eru komin jarpur girðingafantur mikill og Ekkjufellsbrúnkur tvær.
Svo einn laugardagseftirmiðdag var lagt í kvennaferð mikla niður i Þ-Bæinn og sóttur þanngað Svarti-Folinn hann Haraldur nokkur Davíðs.
það voru þrjár röskar valkyrjur sem að þeystu í blíðskaparveðri niðureftir, þar fóru fremstar í flokki Inda og Magga á sínum Haröldum og lagði Inda þessi í að hafa Johnsonin aftan á. allt gekk þetta svona líka glimrandi vel allt þar til að komið var að brú nokkurri við Lækjarstíg en þar er forláta hola nokkur sem að búið er að filla svo upp í og stoppa svo í að hún er orðin að stökkpalli, Inda þessi keyrði bara þarna upp á einsog ekkert væri sjálfsagðara og eðlilegt framhald var svo myndarlegt stökk nokkra metra fram og út á brúnna. Ekki var Johnson alveg við þessu búin enda að mæna á gullfallegan skjóttan fola sem að var þarna í girðingu við hliðinna á veginum, nú það var ekki að sökum að spyrja að Johnson flaug upp af hjólrassinum og þar sem að Haraldur þessi er nauðasköllóttur að aftan bara einsog halaklipptur dópermannhvutti þá stefndi allt í að Johnson yrði eftir þarna þar sem að Haraldur þessi og ökukonan svifu á fullri ferð áfram, verð á ráðum hefur bara ekkert lækkað svo að Johnson sá sæng sína útbreidda þarna og greip því dauða haldi í það sem að var hendi næst, og kippti sér snarlega aftur upp á hjólið!! og þakkaði og blessaði þeim sæla fyrir brjósin hennar Indu
nú þegar í Þykkvan var komið var snarlega skellt upp veisluborði og mikið spjallað og plangert, klúbbar stofnaðir, viðurnefni fundin, hugmyndir að búiningum og sprelli á Landamóti settar fram. og tala nú ekki um hlátur og gysið.
Nú svo var snarlega lagt á þann svarta sem að búið var að mýla við hleðslutæki fyrr um daginn ekki hikað eina mínótu heldur bara stokkið á bak, slegið í og kvikindið lagt fyrir allan peninginn og góðan yfirdrátt upp Þykkvaafleggjaran!!
Svo var bara riðin yfirferð alla leið í bæinn, aðeins stoppað til að teipa Johnsonin saman, það var svo gaman að það var farið á límingunum!!
og er nú Haraldur þessi kominn í bútkamp hjá Baldvinni nokkrum og æfir hann nú stíft fyrir sumarið!
og það er mikið hlakkað til.
Kvöldið var svo endað á meistaragrillveislu ala Anna Birna og Egill!
takk takk
og þakka hljóðið.