já og þá verður bara lítið um fréttir hér, en úr því verður bætt fljótlega.
Það helsta í fréttum af sveitavörgum er að leiðir Johnsons og Ingibjargar hafa skilið, já það var með trega og tárum sem að ákveðið var að láta verða af því að setja þessa elsku í hendurnar á öðrum aðillum. En hún var búin að þjóna vel og diggilega, bæði Johnson og pyngju viðgerðarmanna.
Ekki gat Johnson samt bíllaus verið og með diggri aðstoð frá The Great White þá var fjárfest í forláta skínandi eldrauðri pallbifreið sem hlotið hefur viðurnefnið Fingurbjörg! þar sem að hún er talsvert minni og lágfættari en dramadrottningin hún Ingibjörg.
Fingurbjörg er í alla staði nettari og fíngerðari en Ingibjörg en þó verður að viðurkennast að þegar komin er hestakerra með 4-5 hestum þá er Ingibjargar saknað.
En Ingibjörg er í góðum höndum og fullu fjöri á Akureyri og heldur þar uppteknum hætti við drátt á hestakerrum, brölti í snjó (sem að vísu hefur ekki sést á íslandi síðan að Johnson keypti hana á sínum tíma) og drullu en vonandi fyrir geðheilsu og pyngju nýs eiganda hefur hún lagt af ósiði sína og dramaköst.
Þar sem að nú eru allir gobbalingar með hor í nös og trefill um hálsinn þá er búið að draga fram hann Harald nokkurn Davíðsson og er hann nú kominn í viðgerðar og aðdittsferli og stefnt á fara að þeysa á honum um allar koppagrundir kát einsog hestur í afmæli.
Alla vega var mikið óskup nógu gaman að sækja kvikindið á laugardaginn síðasta í fylgd valkyrjanna Indu og Möggu, djös gleði stelpur.
Þakka hjóðið