Hana þá sagði hænan…..
Mikið vatn hefur nú runnið til sjávar síðan síðast og hreinlega sér ekki fyrir endanum á þessu sífelda vatnsrennsli og vísindamönnum virðist vera alveg sama……
En já hér í dal Hjalta er mikið þjálfað en eitthvað minna riðið út upp á gamla mátan og verður að viðurkennast að dálítill söknuður er að gera vart við sig út af því en fundin verður bót við því um páska er reiknað með.
Nú síðasta Föstudag (í gær) var haldin hér grímugæðingafimi, og Johnson finnst nú ekkert leiðinlegt að finna sér grímubúning og búa til smá atriði ha!! þessi dulda athygglissýki sem að þjáir gripinn….
Það var fundið lag, Sniglabandið með 750 cc!! usss “Fjöllin þau falla í hauga…..og í magan mætti nú lauma tekíla vinur minn……” susssssummsusss, búið að fá forláta krómsalatskál og andlitsklút með tilheyrandi mynd lánað hjá stóra-bró. og útbúin agaleg tekílaflaska með ormi og tilheyrandi til að fá afhenta úr áhorfendastúkunni!! humm er Johnson á rangri hillu í lífinu? ætti að vera að eyða basli í leiklistaskóla?????? nú svo er bara dressað sig upp í forláta algerlega vind og vatnshelda gamla kögurleðurjakkan, leðurskálmar, krómsalatskálin sett á höfuðið, hauskúpuandlitssklútur settur fyrir vitin (andskotans neftópakslykt sem að þar var, spurning hvort að Johnson fari að taka í nefið í framhaldinu????) gaddaogkeðujubelti sett um hálsinn á Mjölni, krómþræðir settir í tag og fax össs hvað helvítis fjöllin skyldu falla í hauga!! og til að tryggja að allt gengi upp var diskunum með forlátuörlagatónlistinni komið til þeirra sem ábyrgð á tónlistinni báru og viðkomandi margspurður hvort að diskurinn væri ekki örugglega klár “jú jú allt tilbúið..” nú og svo mæta Johnson og Mjölnir í fullum skrúða og nei bara backstreetboys í græjunum!!!!!!!!!! engin fjöll að falla í hauga né fingur að kreppast um stýri….já þarna mátti sko tekíla lauma í maga skal ég láta ykkur vita!!! pa atriðið fór bara þarna út um gluggan og Johnson ekki í stuði til að sjá húmorinn í lagavalinu svo að tekílaflaskan var fljótlega hrifsuð úr höndum aðstoðarleikarans og draslið botnað út……
Já blessaðu drengurinn sem að ábyrgð bar á tónlistinni hefur bara ekki hugmynd um hvað hann var að kalla yfir sig þarna, þetta verður bara seint fyrirgefið og betra að hann hafi jafngóða afsökun og “Eyfi bróðir” hafði forðum daga……
já Johnson er nú varla hlátur í huga núna en líta verður til bjartra hliða og veglegur bikar náðist í hús fyrir frumlegasta búninginn….
þakka komuna og hljóðið…
Anna Birna sagði,
apríl 5, 2009 @ 11:42 pm
hjúkket að þetta var ekki eyfi bróðir sem að klikkaði núna mar ….. ; )
En ég er í kasti hérna hvað þú ert hugmyndarík í búningavali… held bara að leiklistaskólinn sé næsti skóli fyrir þig… með neftóbaksklútinn sallat skálina og allan pakkann..
En ertu búin að kyndahúsið ??
Inda Björk sagði,
apríl 13, 2009 @ 6:29 pm
MYND TAKK!!
Og gleðilega páska kæra mín
Kveðja Inda
rabb sagði,
maí 9, 2009 @ 11:44 pm
á ekkert að blogga kona ??
Þórey sagði,
maí 15, 2009 @ 10:07 am
Já hvernig væri að fara að skella inn bloggi ?????