Ingibjörg er með afbrigðum húsbóndaholl.

Já það má hún eiga þessi elska að hún fer nú ekki langt með hverjum sem er.  Og það þekkja nú þeir verkstæðis og skoðunarmenn sem að hafa fært hana til, bakað henni út af verkstæðinu því að aumingjans eigandin sem að er kvennkyns getur það nú örugglega ekki skammlaust.  Og reka sig svo á að drepa á henni trekk í trekk hvort sem þeir ætla aftur á bak eða áfram. :)

Nú í gær bað samnemandi Johnsons um að fá gripinn lánaðan til að reka hestinn sinn hring á hlaupavelli hrossa hér á Hólum, en hlaupavöllur þessi er á kafi í snjó og ekki á færi allra ökutækja að riðjast þar um.

Nú af alkunnu örlæti sínu segir Johnson bara jújú og réttir dömunni lyklana og lætur smá útskýringar um sérvisku Ingibjargar fylgja með.  Nú ekki líður á löngu þar til að stúlkan kemur og getur ekki bakað,  Johnson skíst út og bakar gömlu sinni og beinir henni í þá átt sem á að fara og stúlkan tekur við.  Og aftur líðru ekki á löngu þar til stúlkuhróið kemur aftur og nú kemst hún ekki áfram því að sú gamla drepur alltaf á sér og neitar að fara í gang en ríkur í gang fyrir Johnson, og aftur reynir stúlkan en nú haggast sú gamla ekki og harðneitar að hreyfa sig sama hvað stúlkan gefur í og þegar gamla fór að spóla sig niður í gegnum snjóinn í kyrrstöðu bað Johnson stúlkuna að bíða aðeins og Johnson skildi bara keyra. Og viti menn þá malaði sú gamla einsog gamal og hás en mjög ánægður köttur sem að er nýbúinn að fá rjómaslettu!  En svona til að leggja áherslu á það hvað hún var ekki sátt við að vera lánuð bara sísvona fannst henni ástæða til að festa flautuna inni og baula viðstöðulaust hálfan hring eða svo.

Já það verður að segjast Ingibjörgu til hróss að það myndi ekki ganga svo létt að stela henni, menn kæmust ekki langt.

Ekki ætlar Johnson að upplýsa það hér hver trikkin eru til að koma þeirri gömlu skammlaust áfram en þau eru sko nokkur.

Þakka hljóðið.

6 svör hingað til »

  1. 1

    Þóra sagði,

    Nei sko, Jóna bloggari, vissi ekki að þú ættir þessa hlið til. Fullt af ríspekt til ingibjargar!

  2. 2

    rabb sagði,

    HAHHAAHA það tekur ekki hver sem er hana Imbu til kostana ;)

  3. 3

    Una sagði,

    hahaha djöfull ertu öflugur bloggari.. frábær afþreying í skólanum ;)

  4. 4

    Inda Björk sagði,

    Ingibjörg er æði :)

  5. 5

    Silja sagði,

    Ánægð með Ingibjörguna maður !!! Lætur ekki hvern sem er fara með sig hvert sem er ! Flott stelpa :P

  6. 6

    Johnson sagði,

    æji já mikið sem að það yljar manni um hjartarætur að einhver sýni manni þvílíkt trygglyndi!!


Ummæli RSS · TrackBack URI

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.