Archive for mars, 2009

Ingibjörg er með afbrigðum húsbóndaholl.

Já það má hún eiga þessi elska að hún fer nú ekki langt með hverjum sem er.  Og það þekkja nú þeir verkstæðis og skoðunarmenn sem að hafa fært hana til, bakað henni út af verkstæðinu því að aumingjans eigandin sem að er kvennkyns getur það nú örugglega ekki skammlaust.  Og reka sig svo á að drepa á henni trekk í trekk hvort sem þeir ætla aftur á bak eða áfram. :)

Nú í gær bað samnemandi Johnsons um að fá gripinn lánaðan til að reka hestinn sinn hring á hlaupavelli hrossa hér á Hólum, en hlaupavöllur þessi er á kafi í snjó og ekki á færi allra ökutækja að riðjast þar um.

Nú af alkunnu örlæti sínu segir Johnson bara jújú og réttir dömunni lyklana og lætur smá útskýringar um sérvisku Ingibjargar fylgja með.  Nú ekki líður á löngu þar til að stúlkan kemur og getur ekki bakað,  Johnson skíst út og bakar gömlu sinni og beinir henni í þá átt sem á að fara og stúlkan tekur við.  Og aftur líðru ekki á löngu þar til stúlkuhróið kemur aftur og nú kemst hún ekki áfram því að sú gamla drepur alltaf á sér og neitar að fara í gang en ríkur í gang fyrir Johnson, og aftur reynir stúlkan en nú haggast sú gamla ekki og harðneitar að hreyfa sig sama hvað stúlkan gefur í og þegar gamla fór að spóla sig niður í gegnum snjóinn í kyrrstöðu bað Johnson stúlkuna að bíða aðeins og Johnson skildi bara keyra. Og viti menn þá malaði sú gamla einsog gamal og hás en mjög ánægður köttur sem að er nýbúinn að fá rjómaslettu!  En svona til að leggja áherslu á það hvað hún var ekki sátt við að vera lánuð bara sísvona fannst henni ástæða til að festa flautuna inni og baula viðstöðulaust hálfan hring eða svo.

Já það verður að segjast Ingibjörgu til hróss að það myndi ekki ganga svo létt að stela henni, menn kæmust ekki langt.

Ekki ætlar Johnson að upplýsa það hér hver trikkin eru til að koma þeirri gömlu skammlaust áfram en þau eru sko nokkur.

Þakka hljóðið.

Ummæli (6) »

Blesaveiðar og hrakfarir Ingibjargar og sveitavarga í höfuðstaðnum.

Já nú skildi það gert, langt helgarfrí úr skóla og nægur tími til að framkvæma það sem framkvæmt skildi á Suðurlandi sem var að handsama Bóbó nokkurn Blesaling!!

Þannig var nú jú mál með vexti og vaxtavexti að Bóbó þessi týndist um áramótin. Hann og ræktunarfrumburðurinn (Lögg frá Kópavogi) voru í góðu yfirlæti í Bænum Þykkva þegar Bóbó þessi hverfur úr girðingunni við hinar dularfullustu aðstæður, öll hlið lokuð og girðinin uppi allan hringinn. Upp kom saga um að dularfullir menn hefðu komið í skjóli nætur með kerru og tekið kappan en þar sem að hann er sennilega styggasti hestur á íslandi þá þótti það ólíkleg skýring á Blesahvarfinu mikla, svona eftir að eigandinn var búinn að taka nett móðursýkiskast yfir því að búið væri að stela aumingja litla Blesasling og sennilega selja hann úr landi!! :(

Nú í skemmstu máli sagt þá núna í lok Febrúar þá komu glöggir bændur í Bænum Þykkva auga á hest út í mýri sem að átti ekkert að vera þar og jú þar var Bóbó Blesalingur kominn!! ALLLLLLLEINNNNNN  og mömmulaus út í mýri. það var að sjálfsögðu rokið af stað upp til handa og fóta núna þegar langt helgarfrí kom í skóla að sækja aumingja ræfilis vesalings Blesaling. Þetta small allt á Laugardagskvöld losnaði Ingibjörg úr öndunarvélinni og af gjörgæslunni í Hafnarfirði þar sem að hún var búin að vera í 3 vikna aðgerð á framdrifi. Svo að nú var hún til í allt og hægt að hengja aftan í hana kerru og bruna í Bæjinn Þykkva til að ná í skötuhjúin Blesaling og ræktunarfrumburðinn. Og eftir að hafa platað saklausa vinkonu, hana Elfu Björk  með var tætt og tryllt austur fyrir fjall á Blesaveiðar!!

Byrjuðum á að sækja ræktunnarfrumburðinn, kíktum á nýgotna Nýfundnalandshunda (ætli þeir hafi þá ekki verið nýfundnir??) og fjórhyrntar rollur, týndum 10.000 krónum og brunuðum af stað út í mýri að finna Blesalinginn.

Vegurinn út í mýri reyndist ekki beint kerruvænn svo að Johnson og aðstoðarmaðurinn hugdjarfi ruku út úr Ingibjörgu að athuga aðstæður, eitthvað var Ingibjörg að taka það nærri sér og tók því sem svo að henni væri vantreyst að komast þennan veg svo að hún ákvað að taka nett dramakast og herpa saman allar hurðir og glugga og þegar knoll og tott snéru til baka að henni var bara allt læst!!!! lykarnir í, símarnir á mælaborðinu og mín bara malandi einsog norskur skógarköttur nýbúinn með nokkra lítra af rjóma!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! þarna var nú verðið á ráðum orðið nokkuð hátt, en þegar neyðin er orðin…… birtist ekki prins á gylltum Nissan!!! þar var kominn faðir bóndans í Brekku sem að fann Blesalinginn og hafði verið sendur af stað af syninum sem að gat ekki komið sjálfur.  nú með hörku og alkunni úrræðasemi (ofbeldi) náði Johnson að sansa Ingibjörgu sína en hún var samt bara skilin eftir þarna með kerruna en ræktunnarfrumbruðurinn tekin aftan af kerrunni og látinn skokka með gyllta Nissan. og við af stað út í mýri og keyrum og keyrum og keyrum og keyrum!! og allt í einu fer ræktunarfrumbruðurinn að kalla og kalla og það er kallað á móti og á móti okkur kemur einmana rauðblesóttur sem að er mikið niðri fyrir!! það er nú samt skemmst frá að segja að þrátt fyrir alkunna þrjósku og fælni við að gefast upp þá var Johnson ekki að ná þessum styggasta hesti íslands sem að virðist bara vera hinn glaðasti þarna út í mýri og alveg sama þó að hann sé þar ALLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLEINNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNNN svo að það hefði átt að vera búið að vorkenna honum meira ha???

Nú rennandi blautar, dauðþreyttar og með titrandi neðri vör héldu Johnson og co í Ingibjörgu, skelltum merarræflinum aftur í kerru og bökkuðum Ingibjörgu með kerruna ábyggilega um 2 km eftir niðurgröfnum minna en einbreiðum holóttum moldartroðningi í niðamyrkri þar til að komum að smá útskoti þar sem að hægt var með nýfundinni lægni Johnsons að snúa við!! takk Magnús!! já þessi lægni Johnsons í að bakka og snú við á flugmóðurskipi með kerru er öll í boði Magnúsar bónda í Holtsmúla!! :)

Nú með skottið á milli lappanna og tittrandi neðri vör af kulda kom Johnson við á Borg og hitti þar Jóa nokkurn kenndan við ljós og konu hans. Eftir að hafa þegið þar kaffi og vorkunn (sem ekki veitti af) fann húsbóndinn síman sinn og hringdi á bæji og skipulagði Blesaveiðar í vikunni,  nánar til tekið í dag Miðvikudag! Bíðum spennt frétta af því.  nú ef að þær ganga ekki er stemt með fjölda manns næsta laugardag á Blesaveiðar, með Æðsta valdið í Holtsmúla í broddi fylkingar og Baldvin á kantinum með gömlu framhleypuna!!!  getum örugglega hlaðið hana af svefnlyfjum frá Brýninu.  En mikið sem að þetta er yndælt fólk þarna á Borg, já og allir sem að Johnson hefur þurft að leita til þarna í Bænum Þykkva vegna Blesalings.

Jæja svo var haldið til Höfuðstaðarins, ræktunnarfrumburðurinn settur í pössun hjá Valda en til stóð að fara með hana og Blesaling norður til að leika.

Svo var kerru skilað með þakklæti og svo skilaði Johnson Elfu sinni sem að hélt að hún væri að fara í smá bíltúr austur fyrir fjall en lenti í margra klukkutíma æfintýri heim með miklu þakklæti, takk Elfa mín.

Svo á Mánudag var farið með Ingibjörgu til Hafnarfjarðar í skoðun, og verð að segja að blessaður skoðunnarmaðurinn var sennilega með höfuðið lengst upp í einhverju ónefndu líkamsopi.  Því ekki var hann gáfulegur við að gefa leiðbeiningar um innakstur á Ingibjörgu, það er meira en að segja það að koma henni þarna inn, og svo tuðar hann um að ekkert sé búið að laga síðan síðast og það sem að sé að sé það sama og var að síðast!! hann fékk því smá lestur og upptalningu (allt á rólegu nótunum samt) um hvað hafi verið gert og ef að þeir hafi ekki tekið eftir því síðast þá þurfi þeir að fá sér gleraugu!!

Nú svo bruna Johnson og Ingibjörg með 4 mánaða endurskoðun rígmontnar til Reykjavíkur til að láta gera við hliðarrúðu sem að brotnaði í henni Ingibjörgu. nú þarna er þær rígmontnar á fulle fart með AC/DC í botni á Reykjavíkurvegi nýkomnar yfir ljós á vinstri akgrein á 80 km hraða og allt að gerast VHHHHAMMMMMMMMM  allt í einu er sem ský sé dregið fyrir sólu og ekkert sést út um framrúðu því að húddið fýkur lóðrétt upp í loftið!!!! já krakkar þarna á ögurstund reyndi sko á alkunnar stáltaugarnar sem að Johnson er landsþekkt fyrir! út í kant og reyna að loka (eftir að hafa blásið aðeins í bréfpoka) en það var bara ekki séns svo að það var hringt í hálfgerðum öngum í Indu ráðagóðu, jú Baddinn var í Hafnarfirði og Indan gaf góðfúslegt leyfi til nokkuð frjálsrar notkunnar á honum. og úr varð að Johnson ók Ingibjörgu sinni hringinn í Garðabæ og inn í Hafnarfjörð aftur með húddið beint upp í loft sem miðju fingur alveg án þess að blikkna. verður þó að segjast að þetta vakti undrun og myndi maður halda ótta annara umferðarmeðlima en þeir flöttust jú út á rúðum ökutækja sinna til að virða þetta fyrir sér og margir rifu fram myndavélina og líklegast er feisbúkk vaðandi í myndum af Ingibjörgu og Johnson!! enda myndarlegar með afbrigggggðum. nú eftir að hafa þegið faðm og kaffi hjá Baddanum og Sævari í ÓÓ var hringt í Aðalskoðun og farir ekki sagðar sléttar og voru Johnson og Ingibjörg sendar hið snarasta á réttingarverkstæði þar sem að húdd og lamir voru rifin af, lamir barðar sundur og saman og allt sett á aftur til bráðabirgða, nýjar lamir pantaðar og þarf svo að leggja Ingibjörgu inn seinna til lagfæringa, réttinga og sprautanna. það á bara ekki af þessari elsku að ganga. Nú eftir 2 klukkustunda tafir var aftur haldið í Höfðustaðinn til að láta laga núna 2 rúður í Ingibjörgu.  Þar varð hún að leggjast inn, Johnson hringir í öngum sínum í leigubílaþjónustu Baddans og fær um hæl sendan Egilinn til að komast heim. En og aftur mikið er gott að eiga góða að!! Takk krakkar.

Nú svo á Þriðjudagsmorgun var Ingibjörg tilbúin í slaginn norður og sökum lítt spennandi veðurspár var bara ekki til setunnar boðið ef að ætti að ná norður í reiðtíma! nú upp á miðri Hvaðhúnnúheitirheiði (holtavörðu held ég) fréttist af því að blessuð heiðin sé lokuð og ekkert ferðaveður hinum megin við hana, bílar á undan Ingibjörgu snúa við svo að það er hringt í Stórabró til að fá góð ráð og í samráði við hann ákveðið að láta reyna á nýja framdrifið og kjarkinn og halda áfram í fljúandi hálku og skafrennnningi.  þarna var svo ekið fram á bráðhuggulega björgunarsveitarstráka sem að heimtuðu að fá að fylgja Ingibjörgu niður af heiðinni, sem að var nú auðsótt mál… fliss fliss……. þannig að yfir lokaða heiðina var haldið í fylgd með fullornum. og þegar niður var komið var óveðrið bara yfirstaðið og bara heiður himinn framundan.  Skagafjörðurinn tók svo á móti Johnson með opnum örmum sól í heiði og hangikjötsveislu hjá Thorsen og börnum. Snild og spurning um að fara bara ekkert aftur úr Skagafirði??????????????????????’

 

En ef að Blesaveiðar ganga ekki í vikunni þá væri vel þegið að allri þeir sem að vettlingi, spotta, hlaupaskóm, fjórhjóli, smalahesti eða deyfibyssu geta valdið taki frá laugardaginn 7 marz og komi með í Bæjinn Þykkva á Blesaveiðar!!

þakka áheyrnina

Johnson Blesalaus….

Ummæli (5) »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.