Jæja þá er Johnson mætt á Hóla einn túrinn til! Bý í Geitargerði 2ak ef að einhver á leið um og langar í kaffi!
Með mér er hann Mjölnir nokkur fá Miðdal í Hreppi Lýtinga í firði Skaga. Mjölnir þessi var keyptur óséður og ótaminn í bríaríi fyrir sennilega 5 árum síðan. Hann var svo taminn eftir engum sér kúnstum, það var bara lagt á og riðið af stað. Hann er alveg sérstaklega taugasterkur og kjarkaður þessi hestur og mikil öðlingur. Hann þykir með eindæmum skrefstór og er nú bara nokkuð hágengur og flottur svona þegar Æðsta vald var að sýna Johnson hvernig ætti að gera þetta.
Við erum strax farin að æfa okkur fyrir smalapróf , fyrsti tími með þeim tækjum og tólum á föstudaginn og gaman að segja frá því að Mjölnir er alveg sallarólegur yfir þessu öllu saman og mátti Johnson bara leggja á strax í fyrsta tíma og byrja að hoppa yfir tunnur og ríða upp á palla og opna hlið og teygja sig eftir gæru og hvað eina!! og ekkert mál, annað enn í fyrra með henni Spurningu minni sem að var bara ekki alveg að fíla þetta rugl og lét ekki bjóða sér svona vitleysu!
enda ákveðin og stolt meri þar á ferð;)
Í múla Holts skildust leiðir Johnsons og lítillar brúnar merar með bláan stallmúl en það er gaman að segja frá því að meri þessi er nú ekki lengur með bláan stallmúl!! búið að taka hann og henda honum og meri orðin reiðfær um allt hesthús og reiðskemmu! fer um á hágengu tölti og brokki! gaman að því!
Spurning um að kaupa ræfilinn……..
Annað í fréttum er að hann Blesi ræfillinn er týndur, hann hefur sennilega fælst á gamlársdag og hoppað út úr girðingunni og þotið út í buskan, og að lagt hafi verið á Ingibjörgu og þvælst um allt þarna í Þykkvabæ sást hvorki tagl né hófur af Blesaling…….:(
Þetta var svona léttur fréttapakki í tilefni af nýju ári!!
Lifið heil og gleðilegt nýtt ár!
Þórey sagði,
janúar 18, 2009 @ 11:20 pm
Já gleðilegt árið og velkomin í sveitina, dalinn hans Hjalta eins og þú myndir líklega orða það ;o) Þurfum endilega að vera duglegar að finna uppá einhverri vitleysu meðan þú ert fyrir norðan.