Archive for janúar, 2009

“Sál hestsins er stór og göfug. Hún þekkir ekki duttlunga. Umfram allt er hún hugrökk og þarfnast ástar. Hins vegar getur eitt hranalegt högg eyðilagt að eilífu göfuga sál.”

Comments (1) »

Seitavargar mættir í heiðardalinn, Hjaltadal!

Jæja þá er Johnson mætt á Hóla einn túrinn til! Bý í Geitargerði 2ak ef að einhver á leið um og langar í kaffi!

Með mér er hann Mjölnir nokkur fá Miðdal í Hreppi Lýtinga í firði Skaga. Mjölnir þessi var keyptur óséður og ótaminn í bríaríi fyrir sennilega 5 árum síðan. Hann var svo taminn eftir engum sér kúnstum, það var bara lagt á og riðið af stað. Hann er alveg sérstaklega taugasterkur og kjarkaður þessi hestur og mikil öðlingur. Hann þykir með eindæmum skrefstór og er nú bara nokkuð hágengur og flottur svona þegar Æðsta vald var að sýna Johnson hvernig ætti að gera þetta.

Við erum strax farin að æfa okkur fyrir smalapróf , fyrsti tími með þeim tækjum og tólum á föstudaginn og gaman að segja frá því að Mjölnir er alveg sallarólegur yfir þessu öllu saman og mátti Johnson bara leggja á strax í fyrsta tíma og byrja að hoppa yfir tunnur og ríða upp á palla og opna hlið og teygja sig eftir gæru og hvað eina!! og ekkert mál, annað enn í fyrra með henni Spurningu minni sem að var bara ekki alveg að fíla þetta rugl og lét ekki bjóða sér svona vitleysu! ;) enda ákveðin og stolt meri þar á ferð;)

Í múla Holts skildust leiðir Johnsons og lítillar brúnar merar með bláan stallmúl en það er gaman að segja frá því að meri þessi er nú ekki lengur með bláan stallmúl!! búið að taka hann og henda honum og meri orðin reiðfær um allt hesthús og reiðskemmu! fer um á hágengu tölti og brokki! gaman að því!

Spurning um að kaupa ræfilinn……..

Annað í fréttum er að hann Blesi ræfillinn er týndur, hann hefur sennilega fælst á gamlársdag og hoppað út úr girðingunni og þotið út í buskan, og að lagt hafi verið á Ingibjörgu og þvælst um allt þarna í Þykkvabæ sást hvorki tagl né hófur af Blesaling…….:(

Þetta var svona léttur fréttapakki í tilefni af nýju ári!!

Lifið heil og gleðilegt nýtt ár!

Comments (1) »

Smá til að viðhalda geðheilsunni í kreppu og skammdegi……

Til að lífga uppá gráan
hversdagsleikann og gera dagana meira
spennandi og
innihaldsríkari, er mælst til að þú
gerir eitt/fleiri/öll eftirtalin atriði
reglulega…

1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu
í honum með sólgleraugu. Miðaðu með
hárþurrku á bílana sem keyra framhjá.
Athugaðu hvort þeir hægi á sér.

2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss
kallkerfinu. EKKI reyna að breyta
rödd þinni.

3. Stattu föst á því að netfangið
þitt sé:
Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca
eða
Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca

4. Hvert skipti sem einhver biður þig
að gera eitthvað fyrir sig, spyrðu,má
bjóða þér franskar með þessu?”

5. Stilltu ruslafötunni upp á
skrifborðið með miða á sem
segir,,Inbox”

6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu
við prjónadót

7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu
kaffi í þrjár vikur. Þegar allir eru
búnir að losna við koffínfíknina,
fyllirðu á með espresso.

8. Á allar kvittanir skrifar þú;
Fyrir kynlífsþjónustu.

9. Ljúktu öllum setningum þínum með;
Samkvæmt spádómum.

10. Ekki nota punkta.

11. Hoppaðu í stað þess að ganga.

12. Spurðu fólk hvers kyns það sé.
Hlæðu brjálæðislega þegar það hefur
svarað.

13. Taktu sérstaklega fram í
bílalúgusjoppunni að pöntun þín
sé,,taka með”.

14. Syngdu með í óperunni.

15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu
afhverju ljóðin vanti allan ryþma.

16. Hengdu flugnanet í kringum
skrifborð þitt. Spilaðu
frumskógarhljóð af diski alla daga.

17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum
fyrir partýið að þú komir ekki því þú
sért ekki alveg upplögð.

18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa
þig með Gladiator-nafni þínu,Rock
Hard.

19. Þegar peningarnir koma út úr
hraðbankanum hrópar þú ,,Ég vann! Ég
vann!!! Þriðja skiptið í þessari
viku!!!!”

Og að lokum, síðasta ráðið til að
halda uppi mátulegri geðveiki í
hversdagsleikanum:

20. Sendu þetta bréf áfram til allra
í netfangaskrá þinni, líka þeim sem
hafa sent þér þetta og einkum þó þeim
sem hafa sérstaklega frábeðið sér ÖLL
svona bréf.

‘·.¸¸.·´¯’·.¸¸·´¯’·.¸¸.·´¯’·.¸
>
.¸¸·´¯’·.¸¸.·´¯’·.¸ >
Syntu í friði…

Leave a comment »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.